Æviágrip

Jón Nordal
f. 1926, d. 2024
Jón Nordal var eitt merkasta tónskáld Íslendinga á 20. öld og fyrri hluta þessarar aldar. Auk þess að vera afkastamikið tónskáld var Jón mikill hvatamaður að nýsköpun í tónlist á Íslandi og einn helsti áhrifamaður tónlistarmenntunar hér á landi.
Sköpunarferill Jóns Nordals spannaði nærri 70 ár og eru verk hans fjölbreytt að formi og gerð. Á verkaskrá hans eru hljómsveitarverk og einleikskonsertar, kammertónlist og orgelverk, kórverk og sönglög, leikhústónlist og fleira. Meðal kunnra verka Jóns Nordals eru hljómsveitarverkin Choralis sem pantað var af Mstislav Rostropovich fyrir National Symphony Orchestra í Washington (1982), Leiðsla sem pantað var af Fíharmoníuhljómsveitinni í Björgvin í Noregi (1973), Adagio fyrir flautu, hörpu, píanó og strengi sem pantað var af Bohdan Wodiczko fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands (1966), Óttusöngvar að vori fyrir sópran, kontratenór, selló, slagverk og orgel (1993) og Píanókonsert sem tónskáldið frumflutti sjálft með Sinfóníuhljómsveit Íslands (1956). Jón er einnig höfundur laga sem eiga sérstakan sess hjá þjóðinni og má þar nefna sönglagið Hvert örstutt spor við ljóð Halldórs Laxness og kórlagið Smávinir fagrir við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, sem Jón samdi einungis 14 ára gamall.
Jón Nordal var skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík í 33 ár en skólinn var æðsta menntastofnun landsins í tónlist og lagði grunn að uppbyggingu íslensks tónlistarlífs með menntun atvinnutónlistarmanna, hljóðfærakennara og tónmenntakennara. Þá var Jón einn stofnenda og fyrsti formaður Musica Nova 1959 sem var félagskapar um flutning nútímatónlistar á Íslandi.
Jón Nordal var fæddur 6. mars 1926 og andaðist 5. desember 2024 á 99. aldursári.